Mig langar að tala aftur um PLAST! Það er ekki langt síðan ég fór að velta fyrir mér plastinu í kringum mig. Ég las viðtal við Unu Emilsdóttur læknanema á bleikt.is. Þar ráðlagði hún fólki að forðast plast. Þetta fannst mér mjög áhugavert og fór að afla mér upplýsinga um plastið og afhverju við ættum að forðast það.
Allt plast er slæmt en plast er mis eitrað. Mig langar að fjalla hér um þessar 7 gerðir plasts og merkingar þess. Hvaða plast við skulum forðast eins og við getum og hvaða plast er talið hafa minni áhrif á heilsuna okkar.
1: PET eða PETE
Stendur fyrir polyethylene terephthalate. Þetta er þunnt glært plast, sem er gjarnan notað í gosflöskur og fl. Í þessu plasti geta verið örlitlar plasteindir sem innihalda BPA. BPA er talið geta haft truflandi áhrif á innkirtla og rannsóknir hafa sýnt tengsl á milli aukinnar hættu á brjóstakrabbameini, krabbamein í legi, fósturláti og fæðingargöllum. Helsta hættan við þetta plast er ef plastið hitnar þá getur það brotnað niður og byrjað að leysast útí drykkinn sem það geymir. Svo forðist að drekka úr plastíláti sem hefur staðið lengi í og jafnvel hitnað.
Áhætta: miðlungs áhætta að nota þetta plast. Menn koma sér ekki saman um áhættuna.
2: HDPE
Stendur fyrir high density polyethylene. Þetta plast er heldur þykkara en PETE. Það er oft notað í shampoo brúsa, leikföng og þvottaefnabrúsa.
Áhætta: lítil áhætta. Þetta plast er ekki talið valda skaða.
3:PVC
Stendur fyrir polyvinylchorid. Þetta plast er hægt að finna allstaðar. Þar má nefna umbúðir utan um shampoo, hárnæringu og handsápu og fl. PVC inniheldur phthalates sem er talið hafa truflandi áhrif á innkirtla. Við framleiðslu á PVC losar þetta plast sig við dioxin útí umhverfið sem er talið mjög krabbameinsvaldandi. Þetta efni brotnar hægt niður, þetta er efni sem finnst í líkama okkar og dýra sem við neytum.
Áhætta: mjög hættulegt, reynið eftir fremsta megni að forðast þessa tegund plasts.
4: LDPE
Stendur fyrir low-density polyethylene. Þetta plast er notað til dæmis plastfilmur, plastpoka, matarumbúðir og fl.
Áhætta: lítil áhætta.
5: PP
Stendur fyrir polypropylene. Þetta plast hart og notað í ílát eins og skyrdollur, rör og bleiur.
Áhætta: lítil áhætta ekki talið hættulegt.
6:PS
Stendur fyrir polystyrene. Þetta er hart plast sem er notað í plasthnífapör, plastílát fyrir kjöt og frauðplast. Þetta plast er erfitt að endurvinna. Heilsuspillandi plast sem við ættum að forðast.
Áhætta: mikil áhætta.
7: Other, miscellaneous.
Stendur fyrir annað. Til þessa flokks flokkast allt plast sem á ekki heima í öðrum hópum hér fyrir ofan. Þetta plast má finna í nylon sokkabuxum, sólgeraugum, iphone hulstrum og fl. Þetta plast getur innihaldið BPA og þess vegna ætti fólk að forðast þetta plast.
Áhætta: Mikil áhætta.
Forðumst plast sem er merkt: 1,3,6 og 7
Veljum frekar plast sem er merkt; 2,4 og 5.
Heimildir: http://naturalsociety.com/recycling-symbols-numbers-plastic-bottles-meaning/
Reynum eins og við getum að forðast plast, en veljum plastflokka 2,4 og 5 ef við neyðumst til.
Tökum ábyrð á okkar eigin heilsu
xxx
Kristína Björk