Það er ekkert grín ef að litli maðurinn á heimilinu fær hægðartregðu eða vindgang. Það verða allir fjölskyldumeðlimir miður sín. Sem betur fer gerist það ekki oft, en vissulega kemur það fyrir og þá oftast ef að rútínan fer í eitthvað rugl. Það besta sem mér finnst að ég get gert við hægðartregðu er að reyna fyrirbyggja að hún verði. Mér finnst best að bæta smá olíu útí morgungrautinn hjá Arnleifi Breka, annað hvort kókos eða olífuolíu. Ef að ég sé að það gæti stefnt í að harðlífi bæti ég jafnvel smá hörfræjaolíu útí grautinn. Það er líka gott að gefa þeim saxaða döðlur, rúsínur eða sveskju en þeim stutta finnst það algjört nammi. Þegar hefur komið til þess að Arnleifur Breki geti ekki kúkað. Þá byrja ég yfirleitt að setja smá kókosolíu á bossann, því það getur verið mjög sárt og jafnvel blætt ef að það eru mjög harðar hægðir að koma út. Það er gott að gefa krílunum smá sveskju mauk annað hvort það sem þið búið til sjálf eða kaupið. Af þeim keyptu finnst mér frá Ella´s kitcen best. Ef að það er komið í óefni er gott að nudda magan á krílinu frá hægri neðri fjórðungi, í bogahreyfingu upp undir rifbein og niður á við til vinstri og endurtaka nokkrum sinnum. Þessi hreyfing örvar ristilinn og kemur honum í gang. Þessi hreyfing er líka góð við vindverkjum ásamt því að taka fæturnar á barninu og láta það hjóla útí loftið og eftir smá hjól þrýsta hnjánum létt í átt að kviðnum. Ef þetta virkar ekki er hægt að taka blauta hreina grisju og þrýsta með vísifingri á rassinn sem örvar þrýstings tilfinningu hjá barninu. Einnig er hægt að taka smá kókosolíu í fljótandi formi(ca. 1-2 ml) setja í sprautu og sprauta hægt og rólega upp í rassinn, sérstaklega ef barnið fær verki eða stingi við að rembast.
Læt myndir fylgja með til útskýringa. Vona að þetta hjálpi eitthvað ef þið eruð með einhvern prumpumalla heima;)
Xxx
Kristína Björk
Læt myndir fylgja með til útskýringa. Vona að þetta hjálpi eitthvað ef þið eruð með einhvern prumpumalla heima;)
Xxx
Kristína Björk