Ég hef áður deilt með ykkur hvað ég er hrifin af rósavatni. Nú því það er konudagurinn og margar konur fá rósir má ég til með að deila með ykkur andlitsvatni sem ég nota á morgnanna og mér finnst vera algjör snilld. Þetta rósavatn er alveg til að vekja mann og koma manni hressum af stað útí daginn.
Það sem þið þurfið er:
200 ml rósavatn
15 dropar orange ilmkjarnaolía.
1 e-vítamínperla.
Aðferð:
Takið rósavatn sem þið eruð búnar að gera og setjið í ílát, bætið við 15 dropum af orange ilmkjarnaolíum og 1 perlu af e-vítamíni, þar sem ég er með þurra húð set ég alltaf 1 perlu en ef þið eru með olíukenndari húð þá getið þið sleppt þessu. Inná blogginu undir "heilsa og útlit" ættu þið að finna uppskrift af rósavatni, bæði sem þið getið gert úr rósum sem þið eigið og ilmkjarnarósadropum.
Mér finnst dásamlegt að nota þetta á morgnanna áður en ég set á mig vítamínserum(kemur uppskrift seinna:)) og síðan farða:))

Hvet ykkur til að prufa þetta þegar rósinar ykkar eru aðeins farnar að dala:))
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk