Í hverjum mánuði eyði ég ca. 700-1400 kr. í dömubindi eða trútappa. Þetta þýðir að meðaltali eyði ég 1050 kr á mánuði eða 12.600 kr. á ári og á 10 árum myndi ég eyða 126.000 kr. Það er ekki bara dýrt að kaupa alltaf dömubindi og trúrtappa, þetta er líka óumhverfisvænt. Ímyndið ykkur hvað við notum mörg dömubindi yfir eitt skeið blæðinga! Margfaldið það með 12 mánuðum og svo aftur með 10 árum! Þvílíkt magn sem ekki er hægt að endurvinna. Ég tala nú ekki um ef við tökum saman hvað við dömurnar erum margar sem notum dömubindi. Síðast en ekki síst þá eru það eiturefnin í þeim. Í trútappa má finna meðal annars rayon, dioxin, ilmefni og fleiri eiturefni. Svo vegna þess að það er dýrt, óumhverfisvænt og fullt af eiturefnum sem geta haft áhrif á heilsuna mína, tók ég þá ákvörðun að hætta nota dömubindi og túrtappa og byrjaði að nota álfabikarinn. Mikið er ég ánægð með þessa ákvörðun. Hann kostar rúmar 7000 kr. og getur endst í allt að 10 ár ef maður fer vel með hann og týnir honum ekki:P. Það er smá munur að eyða 126.000 kr eða 7000 kr! Hann á ekki að hafa nein áhrif á heilsuna okkar en það er hægt að kaupa álfabikara sem eru ýmist búnir til úr gúmmí eða silikoni. Ódýrt, umhverfisvænt, hættulaust og ég tala nú ekki um ÞÆGILEGT! Verum væn og græn OG spörum pening xxx Kristína Björk |
0 Comments
Leave a Reply. |
Categories
All
Archives |