Ég er alltaf að reyna bæta meira af grænmeti og ávöxtum inn á matseðilinn hjá litlu fjölskyldunni minni. Ég greip Helga Þór, manninn minn glóðvolgan með súkkulaði um daginn! Ég spurði hann afhverju hann hafi ekki gripið sér frekar gúrku eða gulrót. Hann svaraði “æjj ég nennti ekki að græja það til”.
Það er mikið til í þessu hjá honum. Það er miklu auðveldara að kippa með sér kexi eða súkkulagði til að seðja hungrið , sérstaklega þegar maður er á hraðferð eða ef að maður er sársvangur.
Svo ég brá á það ráð að fara í búð og kaupa falleg plastbox sem eru án BPA og phthalate.
Ég er farin að leggja grænmetið í bleyti í 10 mínútur með eplaediki og skola það svo með köldu vatni. Við þetta ætti töluvert af skordýraeitrinu að skolast af.
Mér finnst best að skola og skera grænmetið um leið og ég kem heim úr búð. Ég er farin að kaupa aðeins af lífrænu grænmeti en mér finnst íslenska grænmetið samt langsamlega best. Það er svo ferskt og girnilegt.
Ekkert mál að búa til salat og ekkert mál að kippa með sér einhverju ef maður er á hraðferð:)

Ef þið hafið áhuga að fylgjast með okkur fjölskyldunni finna leiðir til að lifa heilsusamlegu og grænu lífi endilega addið mér á:
instagram: kristinabjorkarnors
snapp: kristinabjork
xxx
Kristína Björk
instagram: kristinabjorkarnors
snapp: kristinabjork
xxx
Kristína Björk