Ég hef síðustu ár verið alveg háð hárblásara og sléttujárni. Þar sem ég er með liði í hárinu verður það bara úfið og ljótt ef ég hugsa ekki nægilega vel um það. Síðan ég var með hárlosið, hef ég reynt að minnka að nota hita á hárið svo ég varð að finna leið til að halda hárinu fallegu án þess að nota hita. Ég prófaði að gera mitt eigið salt sprey eða beach spray. Það er ótrúlegt hvað hárið verður fallegt við það og hvað það þarf í raun lítið að eiga við það. Ég get spreyjað þessu í blautt hárið eða þurrt. AFHVERJU FATTAÐI ÉG ÞETTA EKKI FYRR?? SVO EINFALT, SVO ÓDÝRT!! Það er hægt að kaupa þessi spray útí búð en ég er alltaf að reyna spara svo ég ákvað gera bara mitt eigið úr hráefnum sem ég fann heima:)) Það sem þú þarft: Sjávarsalt Vatn Olíu ég notaði lárperuolíu (líka hægt að nota olífuolíu eða aðra ljósa olíu) Orange ilmkjarnaolía (má sleppa eða setja aðra lykt mér finnst þessi svo sumarleg.) Sprey brúsa Aðferð: Takið einn bolla af vatni og setjið í spreybrúsa. Bætið við 2 tsk. af sjávarsalti og 2 tsk. af olíu. Ef þið viljið bætið við ilmkjarnaolíum. Ef þið eigið ekki ilmkjarnaolíur getið þið notað smá vanilludropa eða möndludropa sem eru til í eldhússkápunum:) Lokið brúsanum og hristið vel. Tilvalið fyrir mömmur og aðrar skvísur sem hafa lítinn tíma til að hafa sig til! ATH! Munið að hrista brúsan alltaf vel fyrir notkun. Ég nota spreyið það mikið að það skemmist ekki. En ef þið notið af og til getur verið gott að bæta við einni tsk. af vodka. |
Prufið, spreyjið og njótið!
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk