Kísill er fjórða mikilvægasta næringarefnið fyrir líkamann. Hann vinnur gegn allskonar sveppum og hjálpar líkamanum að afeitra sig. Kísill hefur mjög góð áhrif á neglur, hár og húð. Ég byrjaði að taka inn kristals kísill, sem hefur mjög góð áhrif á mig. Kísillinn er líka frábær maski. Ég nota sama kísil og ég drekk, til að búa til maska. Það er ódýrara og mér finnst það alveg jafn gott eins og aðrir dýrir maskar sem eru gerðir úr kísil:))
Það sem þú þarft:
Kísil (ég nota Kristalskísill frá purelife)
Smá vatn
Ílát
Eyrnapinna eða eitthvað hreint til að blanda maskanum saman.
Byrjið á að setja ¼ af skeið í ílát og bætið nokkrum dropum af vatni út og hrærið með eyrnapinna. Ef ykkur finnst maskinn of þurr bætið þið aðeins af vatni. Ef hann er of linur bæti þið bara aðeins meira af kísildufti.
Berið kísilmaskan á ykkur og bíðið þar til að hann verður hvítur þá, þvoið hann af ykkur með volgu vatni. Mér finnst húðin mín alltaf verða silkimjúk og tandurhrein eftir þetta dekur:)))

Hvet ykkur til að prófa, bæði að drekka kísilinn og nota hann á húðina. Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með útkomuna:)))
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk