Ein af þeim snyrtivörum sem ég hef í gengum árin notað daglega, jafnvel oft á dag er svitalyktareyðir. Núna þegar ég veit hvað þessir ónáttúrulegu svitalyktaeyðar eru óhollir fyrir mann ákvað ég að prufa að gera minn eiginn. Það er auðvitað hægt að fara útí búð og kaupa svitalyktareyðir án eiturefna sem er ekki eins tímafrekt, en ég tók ákvörðun fyrr í vikunni að reyna gera sem mest af mínum snyrtivörum sjálf og sjá hvert það leiðir mig.
Það er einfaldara en mann grunar að búa til sinn eiginn svitalyktareyði.
Það sem þið þurfið:
1 bolli bývax.
1 bolli kókosolía.
1 bolli kakóssmjör.
1 ½ msk. Matarsódi.
Valfrjálst:
E-vítamín.
C-vítamín
d-vítamín
Ilmkjarnaolíur.
Ég er mjög hrifin á að nota vítamin í snyrtivörur. Mér finnst ég alltaf finni minni virkni á að sleppa því.
Ilmkjarnaolíurnar vel ég bæði eftir lykt og virkni. Mér finnst snyrtivörur verða vera með góðri lykt og þar sem við erum svo misjöfn eins og við erum mörg getur verið að einhver önnur lykt henti ykkur en það sem ég nota. Svo veljið ykkur lykt sem þið getið hugsað ykkur að vera með á hverjum degi.
Í svitalyktareyðinn ákvað ég að nota tea tree, lemongrass og orange. Tea treeið sem bakteríudrepandi og lemongrasið og orange eru svo hressandi.
Aðferð:
Takið kókosolíuna, bývaxið og kakósmjörið og hitið saman í potti. Hafið lagan hita og hrærið vel inná milli. Það tekur svoldinn tíma fyrir bývaxið að byrja bráðna en þegar það gerist, gerist það hratt svo passið vel uppá blönduna ykkar.
Þegar blandan er orðin tær, bætið þið við madarsóda , vítamínnolíunum og ilmkjarnadropunum. Finnið ykkur hrein ílát og setjið í og leyfið þessu að blöndunni að kólna.
Ég átti ekki tóma túbu af svitalyktareyði svo ég notaði muffinsform og setti smá í lítið box því þessi svitalyktareyðir er frábær varasalvi líka.
Þið getið auðvitað gert minni uppskrift til að byrja með en mér finnst fínt að gera stærri skammta í einu og geyma svo í frysti eða ískáp.
Þar sem ég er að prufa mig áfram með þetta, er ekki alveg komin reynsla á hvernig mér finnst hann virka. En mér finnst lyktin og áferðin góð. Þá er bara spurning um hvernig hann nær að halda svitalyktinni niðri:)