Eftir að Arnleifur Breki fór að labba meira með og snerta allt með litlu kámugu puttunum sínum, sleikja og troða öllu uppí sig fór ég að hugsa meira hvað ég notaði til að þrífa heimilið. Ég hef mjög gaman að því að nota hreinsiefni sem lykta vel svo maður finnur ilminn af hreinu heimili eftir tiltekt. Hins vegar eru fullt af eitruðum efnum í þessum hreinsiefnum sem Arnleifur Breki er síðan að sleikja upp. Svo ég ákvað að fara prufa mig áfram með að gera minn eiginn hreinsilög. Það hefur lengi þekkst að nota vatn og edik til hreingerningar enda drepur edikið bakteríur og er lyktareyðandi en gallinn við edikið er hvað lyktin af honum er sterk og alls ekki nógu góð. Ég fór því í Heilsuhúsið og keypti þær ilmkjarnaolíur sem mér finnst bestar til að blanda með. Mér finnst lemongrass og lavenderinn vera mínir uppáhalds ilmir. Þeir eru algjörar andstæður. Sítrónugrasið er orkugefandi og frískandi á meðan lavenderinn virkar slakandi, það skiptir í raun engu máli hvaða ilmolíu þið notið svo lengi sem ykkur finnst lyktin góð það eru til svo margar dásamlegar olíur.
Hlutföllin af hreinsinum eru svona:
½ bolli edik
3 bollar vatn
10 dropar ilmkjarnaolíur af eigin vali
Hreinsilögin nota ég á allt og virkar jafn vel á gler og klósett og allt þar á milli.
Hlutföllin af hreinsinum eru svona:
½ bolli edik
3 bollar vatn
10 dropar ilmkjarnaolíur af eigin vali
Hreinsilögin nota ég á allt og virkar jafn vel á gler og klósett og allt þar á milli.
Ég hvet ykkur til að prófa þessa snilld sérstaklega ef þið eruð með lítil kríli á heimilunum.
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk