Undanfarin ár hefur verið mikil vitundavakning hvað varðar líkamlega heilsu. Það er að segja við erum að borða næringaríkari mat og nota jafnvel detoxkúra til afeitrunar. Við forðumst að borða unnar vörur sem innihalda hin og þessi eiturefni sem við viljum ekki setja ofan í okkur en við gleymum oft að endurskoða þær vörur sem við notum á húðina okkar. Húðin er stærsta líffæri líkamans og við þurfum að vera meira vakandi hvaða efni við notum á húðina!
Ragnheiður Hera vinkona benti mér á eitt sniðugt app sem heitir “think dirty” . Þetta app er hannað til að skanna inn vöru eða fletta henni upp og athuga hvaða eiturefni er að finna í vörunni. Vörunum var raðað niður á skala og gefið númer frá 1-10 eftir því hvað mikið af eiturefnum var í þeim, því hærri tala, því meira af eiturefnum.
Ég tók til snyrtivörur sem ég fann og ákvað að prufa gæðin. Ég verð að segja að ég varð ORÐLAUS.
JOHNSON´S BABY BEDTIME LOTION
Á eiturefna skalanum 1-10 fékk þetta krem sem er ætlað litlu börnunum okkar, töluna 9. Efnin í þessu kremi geta valdið ofnæmi, geta valdið ónæmiseituráhrifum og haft truflandi áhrif á innkirtlastarfssemi. (Sem betur fer hef ég ekki notað þetta krem á Arnleif Breka!)
JOHNSON´S BABY SHAMPOO
Fékk töluna 10!! 10! Efnin í þessu shampooi geta haft truflandi áhrif á hormónastarfsemi, getur kveikt á exemi og valdið ofnæmi. Einnig með eiturefni sem er þekkt krabbameinsvaldandi efni (Er virkulega leyft að selja þetta fyrir lítil börn)
NIVEA ANTI-PERSPIRANT: INVISIBLE FOR BLACK AND WHITE
Fékk töluna 9. Þessi vara er sögð hafa truflandi áhrif á hormónastarfsemi og veldur ofnæmi. Þessi vara fer í ruslið ásamt hinu!
L´OCCITAN SHEA BUTTER
Fékk töluna 0! Þessi vara er talin hættulaus! Ég verð að segja að það var mikill léttir enda er þessi vara ein af UPPÁHALDS.
MAC PREP+PRIME BB
Fékk töluna 10! Eiturefna listinn var langur til dæmis: Efni sem eru tengd við brjóstakrabbamein, ofnæmisviðbrögð og truflandi áhrif á innkirtla og fl.
MAC STUDIO FIX FLUID SPF 15
Fékk töluna 5. Í eiturefna lýsingu er ekki búið að sanna að nein efni hafi skaðleg áhrif .
Pælum aðeins í því hvaða vörur við erum að nota á húðina okkar og barnanna. Verum meðvituð hvaða efni eru í hvaða vörum og notum þær vörur spari ef við þurfum að nota þær.
Hvet ykkur til að hala niður “think dirty” appinu svo þið vitið hvaða efni þið eruð að bera á fallegu húðina ykkar. Þið fáið bara eitt stykki;)
Nú er ég farin að henda!
xxx
Kristína Björk