Um migÉg heiti Kristína Björk og er fædd og uppalin Reykjavíkurmær, Grafarvogsmær nánar tiltekið.
Ég bý á Akureyri með litlu fjöldskyldu minni, Helga Þór sem er tilvonandi eiginmaður minn og starfar sem deildarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og litla stráknum okkar honum Arnleifi Breka. Ég er í fæðingarorlofi, en legg nám á fjölmiðlafræði í Háskólanum á Akureyri. Áhugamál mín eru mörg en ansi ólík. Allt frá heilsu, útliti og hollu mataræði yfir í stjórnmál, barnauppeldi og allt þar á milli. Bloggið mitt hugsa ég sem áhugamál, þar sem ég get deilt ráðum og pælingum sem ég tekst á við í mínu daglega amstri sem móðir, tilvonandi eiginkona og námsmaður. Vil taka fram að ég fæ ekki sölulaun af þeim vörum sem ég mæli með í blogginu mínu, heldur er þetta eingöngu vörur sem ég hef verið að nota og hafa komið sér vel fyrir mig:) Ef þið hafið áhuga að fylgjast með okkur fjölskyldunni finna leiðir til að heilsusamlegu og grænu lífi endilega addið mér á: Instagram: kristinabjorkarnors Snapchat: kristinabjork |