Viðkvæmir barna bossar.
Ég reyni að vera mjög gagnrýnin á þau efni sem ég nota á Arnleif Breka. Hvort sem það er þvottaefni, baðsápa, bleyjur eða grisjur. Ætli það er ekki að hluta til af því að ég er sjálf með frekar viðkvæma húð. Þegar ég var ólétt af Arnleifi velti ég mikið fyrir mér hvaða vörur ég vildi nota á bleyjusvæðið og ég komst að þeirri niðurstöðu að þurrar bómullargrisjur án ilmefna og aukaefna hentuðu okkur best. Boxið keypti ég í tupperware og er mjög þægilegt að ná einni grisju úr í einu. Ég sýð alltaf vatn í hraðsuðukatli og set í glas og set ca. 1 tsk. af lyktarlausri kókosolíu og helli yfir grisjurnar í boxinu og bæti við vatni úr hraðsuðukatlinum eftir þörfum. Mér finnst þessar grisjur alveg frábærar ná vel erfiðum kúk og Arnleifur hefur sloppið vel við bleygju útbrot. Stundum blanda ég einum dropa af lavender með í vatnið, lavenderinn virkar mjög róandi á bæði húð og andlegan líðan. Bara muna maður þarf rosalega lítið af ilmkjarnaolíum þær eru svo sterkar. Verðið á einum pakka af grifjum er um 215 kr. í rekstrarland, en það er hægt að fá þær líka í apótekum og eru á mjög svipuðu verði þar líka.
Grisjurnar nýtast í meira en bara taka kúk og litlum bossum. Ég nota oft grisjurnar til að taka af mér erfiðan maskcara en kókosolían er frábær í að fjarlægja farða.
Læt myndir fylgja með hvernig ég fer að :))
xxx
Kristína Björk