Möndlusmjör er eitthvað sem mér finnst rosalega gott, bæði á epli, brauð eða í nammi. Mér finnst mjög gaman að búa til möndlusmjör frá grunni það er bæði aðeins ódýrara enn að kaupa það í litlum dollum útí búð og einnig finnst mér það betra á bragðið.
Það sem þú þarft:
Ofn
Möndlur (sem gefur kannski auga leið)
Matvinnsluvél
Salt (má sleppa)
Og ÞOLINMÆÐI
Aðferð:
Takið 2-3 bolla af möndlum og setjið í ofn. Ég mæli með að hita möndlurnar í ofni í 10-15 mínútur á 110 gráður. Passið að hafa ekki á blæstri, því það þurrkar þær upp. Við viljum bara hita þær upp.
Takið síðan möndlurnar og setjið í matvinnsluvél og látið í gang. Þetta ferli tekur smá tíma. Verið dugleg að stoppa matvinnsluvélina og skafa möndlumixið niður úr köntunum. Ferlið tekur um 20-30 mínútur svo ekki örvænta ef það er enn gróft og ekki farið að binda sig saman strax, þetta tekur tíma.
Þegar blandan er orðin þétt og kremkennd er möndlusmjörið til. Ef þið viljið bætið við smá salti. Mér finnst saltið draga fram möndlubragðið.

Verið þolinmóð og njótið
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk