Það er allskonar álag sem fylgir því að verða mamma. Maður fær áhyggjur af öllu mögulegu sem getur haft slæm áhrif á sálina. Ég man stuttu eftir að strákurinn minn kom í heiminn, helltist yfir mig andleg þreyta. Sem stafaði eingöngu af áhyggjum af þessu litla kríli.
Barnsgrátur er mikill steituvaldur og við mömmurnar þurfum frá upphafi, að passa að halda okkur í andlegu jafnvægi.
Þetta er mín leið til að takast á við steituna sem fylgir því að vera mamma.
Þegar vekjaraklukkan hringir kl 7:00, fer ég fram og tek Arnleif Breka með mér ef hann er vaknaður. Ég fer inn í stofu set á smá hugleiðslu tónlist, ég sest í jóga stellingu og kem mér vel fyrir.
Ég byrja að anda þrisvar djúpt ofaní maga, inn um nefið og út um munninn. Ég ímynda mér að ég anda inn vellíðan og ánægju og anda frá mér stressi og neikvæðni. Ég veiti því athygli hvernig öndunin er og ef ég er eitthvað stressuð þá reyni ég að anda enn dýpra ofaní maga.
Næst þegar ég er búin að anda vel ofaní maga tel ég upp í huganum, það sem ég er þakklát fyrir. Það getur verið erfitt til að byrja með en það er ágætt að miða við eitthvað þrennt til að þakka fyrir til að byrja með. Ég er þakklát fyrir barnið mitt, manninn minn, ég er þakklát fyrir að eiga heimili, ég er þakklát fyrir að vera heilbrigð.
Þegar maður æfir sig í þessu áttar maður sig á hvað maður hefur mikið til að vera þakklátur fyrir. Mamma kennir núvitund en hún kenndi mér þessa æfingu. Til að byrja með fannst mér þetta hallærisleg æfing en þegar ég komst yfir að finnast þetta lúðalegt fann ég hvað þetta var endurnærandi!

Ég skora á ykkur til að prufa þessa æfingu í eina viku. Vitið til, dagurinn verður betri og þið takist betur á við mömmustressið!
xxx
Kristína Björk
xxx
Kristína Björk