| Í tilefni þess að ég og Helgi Þór áttum sambandsafmæli, gaf Helgi Þór mér rósir. Ég elska að fá rósir, það eru uppáhaldsblómin mín. Gallinn er reyndar sá að líftíminn er ekkert mjög langur og blómin eru dýr svo mér finnst frábært þegar ég er búin að dást af blómunum í tvo daga að taka af þeim rósablöðin og búa til mitt eigið rósavatn. Rósavatn er frábært andlitsvatn. Þar sem það er Valentínusardagurinn á morgun datt mér í hug að skella inn grein hvernig þið getið gert ykkar eigið rósavatn ef þið fáið rósir. Mér finnst margir kostir við að búa til mitt eigið andlitsvatn sem og aðrar snyrtivörur til dæmis. 1. Þú veist nákvæmlega hvaða efni eru í því. 2. Það er mun ódýrara til langstíma. 3. Umhverfisvænt, þau ílát sem þú notar geturu notað aftur og aftur. Rósavatn er hægt að nota í allt mögulegt.
Það eru tvær leiðir til að búa til rósavatn. Þú getur annars vegar notað rósir sem þú átt eða ef þú hefur ekki tíma í það er hægt að kaupa rósa ilmkjarnaolíu í heilsuverslunum. Hvort tveggja virkar vel. Rósavatn búið til úr rósablöðum. Það sem þið þurfið: 2 rósir 3 bolla af vatni Pott 1 tsk. vodka (valfrjálst enn rósavatnið endist lengur með því í.) Hreint ílát Takið rósirnar og takið af þeim blöðin, þessar tvær rósir ættu að fylla ca. einn bolla af rósablöðum. Takið 3 bolla af vatni, setjið í pott og rósablöðin úti. Setjið eina tekseið af vodka(valfrjálst). Setjið á lágan hita og lok yfir. Þegar rósablöðin eru orðin föl á litin er rósavatnið tilbúið. Tekur yfirleitt 20-25 mínútur. Kælið og setjið í hreint ílát sem lokast vel. Rósavatn búið til úr ilmkjarnaolíum. Það sem þið þurfið: Rósa ilmkjarnaolíu Soðið vatn Hreint ílát 1. tsk vodka (má sleppa) Sjóðið vatn í hraðsuðukaltli eða potti hellið 3 bollum í ílát og bætið við 12 dropum af rósadropum við og 1.tsk af vodka. Kælið og setjið í ílát þá er það tilbúið til notkunar. |
xxx
Kristína Björk
Kristína Björk